Ég er ekki búinn að blogga lengi þó mig hafi langað til þess oft. Vandinn er að þegar ég fæ þörfina þá er ég ekki fyrir framan tölvuna og þegar ég er fyrir framan tölvuna þá man ég ekki hvað mig langaði til að blogga um. Þannig ég ákvað bara að byrja núna og hafa ekki hugmynd hvað ég ætlaði að segja. En það verður samt geðveikt merkilegt.
Málið er að ég nenni ekki að hafa bloggið mitt sem eitthvað nöldur eða röfl og þessa dagana er ég blessunarlega duglegur við að framkvæma frekar en að tala um hlutina þannig ég hef ekki heldur verið í stuði til að auglýsa það sem ég er að gera á kostnað tímans sem ég nota til framkvæmda. Svo virðist ég líka bara vera gleyminn. En gleymið þessari athugasemd því ég ætla bara að tala um eitthvað núna.
Til að byrja með þá skil ég ekki tölvuþjónustur. Mér líður svolítið eins og ég hafi verið fjárkúgaður. Flakkarinn minn, sem innihélt þónokkrar upplýsingar sem ég þarf á að halda fyrir skólann, ákvað að deyja og þar sem hann var í ábyrgð fór ég með hann á verkstæði Tölvulistans, en það væri ekki fyrsti kostur hjá mér að öllu jöfnu. Biðin eftir afgreiðslu hjá þeim er svakaleg og hafði einn karlinn sem var að bíða ásamt mér að hjá þeim liti maður ekki á klukkuna heldur dagatalið.
Eftir að flakkarinn fór í gegnum meðferð hjá þeim þá fékk ég símtal frá verkstæðinu þar sem þeir tjáðu mér að það þyrfti að skipta út einhverju stykki sem þeir ættu ekki til og þyrftu að panta. Gæti tekið langan tíma. Ég var ekki alveg hress með þetta því flakkarinn er skólatæki hjá mér og sagði hann þá að ef biðin væri löng þá gæti ég bara fengið nýjan. Ég auðvitað hváði og spurði um gögnin. Kom hann þá með þessa gullnu setningu: “já, vildirðu reyna að bjarga gögnunum?” Ég sagði náttúrulega “já!”. Hér komum við að fjárkúguninni. Þeir rukka 3.600 kr fyrir gagnabjörgun. Ég auðvitað sagði já og amen því þar sem ég þurfti á þessu að halda en hvað gerist svo? Ég fæ sms í dag þar sem mér er tilkynnt að flakkarinn minn sé tilbúinn.
Er það bara ég eða var ég tekinn í görnina? Á það ekki bara að vera sjálfsagt að tölvuverkstæði leggji áherslu á að bjarga gögnum ef hægt er? Á ég að þurfa að taka það fram? Og ef það er svaka mál eiga þeir þá ekki að nefna það þegar þeir svo hringja en ekki láta það slysast inn í umræðuna? Ég á eftir að sækja flakkarann og ég ætla að nöldra. En ekki fyrr en ég bíð í einn og hálfan tíma eftir afgreiðslu. Það munu vera þrír á undan mér í röðinni.